Helgin og litbolti
Kópur hélt áfram á sunnudaginn með litboltakeppni í Lundi og það var vægast sagt andskoti gaman. Ég var í hópi með Atla, Kidda bró og Kollu. Við vorum einum færri í okkar hóp en náðum að vinna nokkra leiki. Síðan var kíkt í grill hjá Ingvarssyni og venjulegur bær á Hverfiz fylgdi í kjölfarið. Ég og Ingvarsson kíktum í þynnkubíltúr í gær og fengum okkur börger og litum inn til Árnasona, þar lentum við í miðri veislu þannig að okkur var eiginlegi ekki til setunar boðið og kíktum á John Haynez í nýju íbúðinni. Þar er kallinn búinn að parketleggja íbúðina og diskókúlan er komin í loftið inní svefnherberginu. Eitthvað var hann í vandræðum með rúmið þar sem ísbjarnarfeldurinn flæktist í mótornum sem snýr rúminu í hringi. En græjan ætti að komast í gagnið fyrir næstu helgi svo hann getur veitt útá þetta þá.

<< Home