föstudagur, október 29, 2004

Knatt


Rosalega er ég sáttur við þessa ákvörðun hjá Chelsea að reka Mutu, þessir stjörnustælar í knattspyrnumönnum er fyrir löngu orðin óþolandi. Þessi stælar hafa líka smitast yfir á íslenska knattspyrnumenn sem spila í áhugamennsku fyrir framan fjögurhundruð áhorfendur í leik. Sævar Þór Gíslason er svo mikil mannleysa að hann getur ekki spilað fótbolta nema klúbburinn reddi honum góða og þægilega vinnu. Sagan segir að Fylkir hafi reddað honum vinnu margsinnis en hann haldist hvergi við og nú ætlaði Sævar að tryggja það í samninginn að Fylkir haldi áfram að finna nýja vinnuveitendur.
Það er líka fræg sagan um það þegar það var að koma upp ágætis leikmaður hjá Breiðablik fyrir nokkru og hann fékk séns í mfl. í einum leik. Daginn eftir kom pabbinn og heimtaði bíl fyrir strákinn enda væri hann efnilegasti knattspyrnumaður Breiðabliks fyrr og síðar. En það skrýtna var að hann var ekki með bílpróf og nokkuð í það að hann fengi skírteinið. En samt átti að heimta bíl, því sonurinn var svo "efnilegur".

Annars verðið þið að kíkja á þessa heimasíðu buff.is
Rokkskólinn
|

fimmtudagur, október 28, 2004

Boston Red Sox


Getur einhver sagt mér(meinhornið kannski) afhverju fréttastofa útvarps hefur verið að segja frá úrslitum í bandaríska hafnaboltanum á hverjum morgni síðustu 2 vikurnar. Ég veit ekki til þess að það hafi nokkurn tíman verið sýndur heill leikur í íslensku sjónvarpi og engin eftirspurn eftir því. Hverjum er ekki sama hvort Boston Red Sox hafi unnið einhverja deild sem enginn fylgist með.

Annars ætlar meinhornið að bjóða mönnum í heimsókn í ástarhreiðrið næsta laugardag, kíkið hingað og boðið komu ykkar eða ekki.

Hægt er að láta útreikningana
5 + 5 + 5 = 550
standast á að minnsta kosti tvennan hátt með því að bæta við einu striki.
|

Ammeríka

Flórída: 58.000 kjörseðlar týndir Þessi þjóð sem er að boða lýðræði um allan heim með stríðsrekstri og viðskiptaþvingunum kann ekki að halda löglegar lýðræðislegar kosningar. Þetta eru hálfvitar.
|

mánudagur, október 25, 2004

asdf


Dæmigert fyrir þetta United lið, unnu þennan leik á leiðindum, fautaskap og svindli. Djöful myndi ég skammast mín ef ég héldi með þessu liði, algjör viðbjóður.

Annars er það að frétta að ég keypti mér miða til Svíþjóðar í lok nóv til að heimsækja Reyni og Siggu og mig vantar einhvern til að koma með mér á Nýdönsk og Sinfó 5 nóv.
|

laugardagur, október 23, 2004

Póstur & Sími

Eftirfarandi skilaboð fékk ég 16 október,

Greetings from Amazon.co.uk,
We thought you would like to know that the following items have been sent to:
Feel: Robbie Williams
Casino Royale (James Bond 007)
The Man with the Golden Gun
Angels and Demons


Núna 23 okt. hefur íslandspóstur ekki ennþá komið pakkanum til mín og ég efast að pakkinn sé nokkuð á leiðinni. Það þarf að fara að selja þetta ríkisdrasl sem fyrst í hendur á einkaaðila sem kann að reka póstþjónustu.

Póstur & Sími, þú ert drasl !!!
|

föstudagur, október 22, 2004

Fyrirsögn dagsins í DV

"Fáir menn koma vondu orði á stétt handrukkara á Íslandi"

Hvernig halda menn að það sé hægt að vera heiðarlegur handrukkari. Má þá ekki segja það sama um morðingja, það eru örugglega bara nokkrir morðingjar sem koma vondu orði á þá stétt.
|

fimmtudagur, október 21, 2004

Öbbi

Örvar frændi er búinn að leggja mér línurnar með það sem ég á að hlusta á í vinnunni næstu daga, en það eru hljómsveitirnar The Thrills, The Killers, Interpol og Modest Mouse. Einhvern tíman fyrr í ár mælti hann með Keane og Franz Ferdinand þannig að ég býst við miklu af þessu dóti sem ég á að hlusta á núna.
|

miðvikudagur, október 20, 2004

mbl

Sá þessa frétt á mbl.is í gær og ég er ennþá að klóra mér í hausnum.
"Niðurstöðurnar sýna að DG031 hefur tilætlaða virkni á fleiri en einn áhættuþátt hjartaáfalls. Allar skammtastærðir lyfsins sem prófaðar voru minnkuðu styrk bólguvakans LTB4 (leukotriene B4), sem er lokaafurð þess líffræðilega ferils sem erfðarannsóknir Íslenskrar erfðagreiningar hafa sýnt að tengist aukinni hættu á hjartaáfalli. Mesta skammtastærð lyfsins sem prófuð, var minnkaði einnig styrk MPO (myeloperoxidase), en hár styrkur þess ensíms hefur verið tengdur aukinni hættu á hjartaáfalli í óskyldum rannsóknum. Áhrifin á báða þessa áhættuþætti voru háð skammtastærð DG031. Ennfremur kom í ljós að mesta skammtastærðin minnkaði styrk bólguvakans sICAM-I, sem er mikilvægt boðefni við virkjun bólgusvars og frumuíferðar. Engar alvarlegar aukaverkanir af völdum lyfsins komu í ljós í lyfjaprófununum."

|

þriðjudagur, október 19, 2004

Paríss

Ég fór til Parísar um daginn með vinnunni og það er bara engin spurning að þessi borg er sú flottasta í heimi, allar aðrar borgir eru bara rusl í samanburði. Ég á reyndar eftir að koma til Barcelona, Rómar, Madrídar og New York, en miðað við þær fáu borgir sem ég hef farið til þá er París flottust í öllum skilningi orðsins. Þessi borg er alveg hrikalega stór en hvar sem maður er í borginni þá er eitthvað merkilegt að sjá. Síðan er metróið létt og lipurt, leigubílarnir eru hræódýrir þannig að þó svo að þetta sé stór borg þá er auðvelt að ferðast um þarna. Maturinn er frábær, fullt af flottum byggingum og leiðinlegum frökkum. Þannig að ef einhverjum vantar ferðafélaga til Parísar á næstunni þá er ég maður.
|