Getraun Gúnda
Ég spái öruggum 2-1 sigri Hollendinga. Glæsileg verðlaun í boði fyrir þann sem giskar rétt.
Það er stu stu stuð að senda stuðkveðju
Forsetakosningar og fífl.
Mér er að verða óglatt yfir því hvað bretarnir eru að æla yfir Wayne Rooney af hrifningu. Núna eru þeir að kalla hann hinn nýja Pele, djíses kræst. Á síðasta tímabili spilaði hann 34 leiki og skoraði 9 mörk og í mínum bókum eru menn ekki orðnir góðir fyrr en þeir skora 20 mörk á tímabili. Wayne Rooney er búinn að skora 3 mörk á EM en mín spá er að hann eigi eftir að enda eins og Salvatore "Toto" Scillachi sem hvarf eftir að hafa meikað það á HM 90.
Fór fyrsta hring sumarsins í gær á Oddfellow völlinn og þvílík snilld. Ég spilaði næstum eins og Monty (Colin Montgomerie), völlurinn frábær og veðrið eins og best verður á kosið. Fyrsta holan gekk ekki alveg nógu vel, önnur hola var betri og þriðja náði ég fyrsta pari tímabils og ekki leiðinlegt að byrja sumarið svona vel. Err Bjé E spilaði með mér og hann átti því miður ekki nógu góðan dag en hann kenndi um gömlum meiðslum í hné. Enda er það þekkt hve óheppinn hann er með meiðslin þegar illa gengur í íþróttunum. Annars eru 2 veislur í kvöld Öbbi frændi heldur uppá afmæli og síðan er útflutningspartý í Daltúni. Gott mál, vinna.
sem hefur verið handtekin 6 sinnum fyrir ölvun og neitað að borga fyrir leigubílaakstur. Í kjölfarið hafa bílstjórarnir skutlað konunni á lögreglustöð og þar hefur hún rifið svo mikið kjaft að henni hefur verið stungið í steininn og látin sofa úr sér. Núna var hún að vinna mál hjá evrópudómstólnum sem segir að lögreglan hafi ekki haft heimild til að stinga henni inn. Til hamingju Hildur, núna ertu 550 þús. krónum ríkari og náðir að komast á forsíðu DV. Draumur hvíta ruslsins að rætast.