fimmtudagur, október 30, 2003

Megas er næstum þvi eins góður textahöfundur og ég en hann samdi þennan frábæra texta um fjallkonuna

Ávarp til fjallkonunnar

Þú lagðist forðum gleið á grund
undir gíruga mangara, feita og danska
og mök við tyrkja heiðinn hund
hafðirðu og sjómenn enska og franska...
|

þriðjudagur, október 28, 2003

Síðan ég byrjaði að nota Head&Shoulders hefur líf mitt breyst, flasan er farin og eftir stendur annar maður með meira sjálfstraust og til í allt.
|

sunnudagur, október 26, 2003

Eins og glöggir menn sjá þá er ég búinn að setja upp svona Shout out dót á vefinn hjá mér svo að menn geti látið sína skoðun í ljós. Endilega látið í ykkur heyra, við gáfaða fólkið höfum svo gaman af því þegar vitlausa fólkið skrifar sína skoðun.
|
Var mættur eldhress í vinnuna kl 8:45 þannig að ég nenni eiginlega ekki að blogga neitt í dag, en Liverpool vann í gær og mér er alveg sama.
|

föstudagur, október 24, 2003

Já það er gott að gleðja fólk. En það virðist vera að sú staðreynd að ég sé byrjaður að blogga aftur hafi gert ansi marga káta og hefur þulan m.a sent mér hlýjar kveðjur þrjá daga í röð sem er vel.

Var að kíkja á próftöfluna mína og ég er strax kominn með svakalegan prófkvíða enda er taflan ömurleg.
04.43.07-036 Ut II - Upplýsingakerfi - forr verklegt 04. des. 13:30-15:30
04.44.02-036 Markaðsfræði III - kauphegðun 65 05. des. 09:00-12:00
04.41.03-036 Stærðfræði A 286 11. des. 13:30-16:30
04.43.07-036 Ut II - Upplýsingakerfi - forr skriflegt 72 12. des. 13:30-15:30
04.42.02-040 Reikningshald III - inngangur 13. des. 09:00-13:00
04.42.05-036 Tölfræði B (1:30 í stofu 2 í tövuveri) 166 16. des. 13:30-17:30

|

fimmtudagur, október 23, 2003

Loksins eiga íslendingar sannan listamann. Leoncie hefur gefið út enn einn diskinn og heitir hann Radio Rapist Restler. Hér fylgir textinn í laginu Ást á pöbbnum. Bara snilld!

Ást á pöbbnum :
Hún hitti hann á pöbb eitt kvöld
á Country pub í Reykjavík
Hún starði á hann mjög ákveðinn
Hann glápti á móti dauðadrukkinn
Hún kinkaði kolli og blikkaði hann
Hann var dáleiddur af allann Vodkann
Hann fór til hennar og sagði
hvar hann var frá
Hún sagði "Veistu hvað?"
Við höfum sameiginlegt
því við komum bæði frá Kópavogi

Chorus

Ást á pöbbnum, þau féllust í ást á
pöbbnum
Nú grætur hann - Hann átti að kynnast
henni fyrst
Hún eyðir öllu hans fé. Hann sparar
ekki neitt
Hann vildi kaupa hús, en hann á varla
fyrir öl krús
Til að gera allt verra hann missti vinnuna
í staðinn að vinna fór hann norður með henni
Hún dróg hann til Akureyrar
Þau dönsuðu línudans fram til klukkan 3
Syngjandi.....við komum bæði frá Kópavogi.

|
Frændi minn hefur farið mikinn síðustu daga í því að sannfæra menn um það að einhver hóllívúd mynd sem er verið að sýna núna sé alveg frábær. Allir sem ekki eru á sama máli eru bara kellingar sem horfa á maður er nefndur og mósaík. Ég er ekki alveg sammála svona rökræðum og mér finnst að þessi mynd segi allt um Örvar og hans rök

En annars bara bolti í kvöld og ég var þreyttur og lélegur
|

miðvikudagur, október 22, 2003

Ég vill nú bara þakka Jóni kærlega fyrir að velja mig sem bloggara ársins og ég veit að ég á þessi verðlaun svo sannarlega skilið.
|