þriðjudagur, desember 23, 2003

Hvet alla landsmenn til að kíkja á baggalút og hlusta á jólakveðjurna. Þarna svífur hinn sanni jólaandi yfir vötnum.
|

mánudagur, desember 22, 2003

Þetta var annars viðburðalítil helgi, var að vinna á föstudagskvöld og laugardag. Hittumst hjá Örvari á laugardagskvöldið kíktum á viðskiptadjamm og síðan fór ég heim. Þunnur sunnudag og fór snemma að sofa.
|
Bókagagnrýni Gvendar
Var að klára fyrstu jólabókina um helgina en hún heitir Á villigötum eftir Henning Mankel. Þetta er þriðja bókin sem fjallar um Rannsóknarlögguna Kurt Wallander en í þessari bók er hann að eltast við geðsjúkan morðinga sem húðflettir fórnalömb sín þegar hann er búin að myrða þau. Ég held bara að þetta sé með betri krimmasögum sem ég hef lesið og fær hún 4 fjaðrir af 5.
|

föstudagur, desember 19, 2003

Ég vill senda eftirtöldum stuðkveðju:
300917-3139 Guðmundur Sverrisson Borgarbraut 65a
311255-5769 Guðmundur Sverrisson Danmörk
110758-3839 Guðmundur Sverrisson Geitasandur 8
210173-4209 Guðmundur Sverrisson Frakkland
240590-2209 Guðmundur Sverrisson Fitjar
170593-3329 Guðmundur Sverrisson Noregur
040494-2009 Guðmundur Sverrisson Frostafold 52
270597-2979 Guðmundur Sverrisson Dalsgerði 2f
|

fimmtudagur, desember 18, 2003

Ómar Stefánsson vill senda stuðkveðju til allra sem voru á Kópi 2003 og sérstaklega vildi hann senda kveðju til Gumma Ingvars vefsíðuhönnuðar. Hann sagðist einnig í viðtali við stuðkveðjur að hann ætli að rústa dorgveiðikeppninni næsta sumar, enda hafi hann mikið forskot á aðra keppendur eftir að hafa verið í hafnarstjórn í mörg ár.
|
Ég er að gera heimasíðu fyrir verslunarmannahelgarfestivalið okkar og ég er búin að ná í slóðina www.kopur.tk. Þannig að þeir sem eiga einhverjar myndir frá síðustu Kóps festivölum mega senda þær á mig svo ég geti sett þær á síðuna.
|
Fór á LOTR 3 í gær, flott mynd soldið langdregin en 4 stjörnur af 5
|

miðvikudagur, desember 17, 2003

Prófin búin og mér gekk illa í öllum prófunum.

En rosalega er ég sáttur við þetta eftirlaunafrumvarp sem alþingi var að samþykja á mánudag. Það er nokkuð ljóst á þessum nýju þingmönnum okkar að það eru bara kjánar sem nenna að vera í stjórnmálum. Dagný Jónsdóttir, Gunnar Örlygsson og Birkir J Jónsson. Þetta eru góð dæmi um það að við erum ekki að fá okkar besta fólk í það að stjórna þessu landi. Meiri laun til Þingmanna og fáum almennilegt fólk á þing.
|

miðvikudagur, desember 10, 2003

Lesið þetta blogg. Alveg magnað !
|

mánudagur, desember 08, 2003

Ég skil ekki heiðurslistamannlaun, Þessir listamenn fá pening frá ríkinu afþví að þeir er svo góðir að vinna vinnuna sína. Ég er örugglega með betri bæjarstarfsmönnum á Íslandi en ég fæ örugglega aldrei heiðursbæjarstarfsmannalaun. Ég gæti alveg gert eitthvað við 1,6 milljón á ári eins og þessir heiðurslistamenn fá.
|

laugardagur, desember 06, 2003

Í helgarblaði DV sannar Frikki Weisshappel að hann er einn af mestu snillingum sem Ísland hefur alið. Hann er þar að velja jólagjafir handa karlmanninum.

1. Hjálpræðisherinn. "Jólagjöf númer eitt er að muna eftir þeim sem minna mega sín"
2. Gallabuxur. "Án gallbuxna er enginn karlmaður. En þegar maður fer úr þeim gerast töfrarnir"
3 Snyrtivöru. "Karlmenn sem segjast ekki nota snyrtivörur er að ljúga", "Ef menn hafa ekki sínar eigin snyrtivörur stelast þeir í snyrtivörur kvennanna og það getur valdið skilnaði"
Síðan toppar hann þetta með því að benta þeim karlmönnum sem ætla að gefa stúlkunni sinni sílíkon í brjóstin að það sé það eigingjarnasta sem þeir geta gefið. Frekar ættu þeir að dæla silíkoni í tittlinginn á sér og þá eru þeir að gefa henni eitthvað óeigingjarnt.

|

miðvikudagur, desember 03, 2003

Stuðkveðja:
Órvar frændi sendir mér stuðkveðju og góða strauma fyrir prófið á föstudag.
|

þriðjudagur, desember 02, 2003

Keypti miða í víkingalottóinu áðan og auðvitað fór ég beint inná lotto.is til að athuga hvort ég fengi milljónirnar greiddar út fyrir jól, en þá rak ég augun í þetta:

Vinningslíkur
Sex aðaltölur ........................................... 1:12.271.512
Fimm réttar aðaltölur og aukatala ......... 1:1.022.626
Fimm réttar aðaltölur............................... 1:52.442
Fjórar aðaltölur ....................................... 1:950
Þrjár aðaltölur og aukatala .................... 1:393

|
Tveir dagar í próf og ég er að deyja úr stressi, prófið á fimmtudag er ekkert svakalega erfitt en það er andsk föstudagurinn sem er meira mál. Þá tekst ég á við Markaðsfræði 3 - Kauphegðun á neytendamarkaði. Þeir sem vilja styðja mig í þessum próflestri eru vinsamlegast beðnir um að senda mér fallegt sms eða tölvupóst
Var annars að horfa á How to Lose a Guy in 10 days í gærkveldi, fín afþreying, tvær og hálf stjarna.
|