miðvikudagur, nóvember 29, 2006

Árshátíð

Mbl.is : Tekinn með 3 kg af kókaíni við komuna til landsins

Verða fjármálafyrirtækin ekki að afkalla allar árshátíðir?

Ég bara spyr
|

sunnudagur, nóvember 05, 2006

Allt nema VG

Ögmundur Jónasson er sáttur við að bankarnir fari úr landi svo "til unnist að jöfnuður náist í landinu" og á sama tíma fáum við fréttir að VG nái að bæta við 8 mönnum í þingflokkinn samkvæmt síðustu spám.
Það má semsagt að stofna fyrirtæki hér á landi svo lengi sem allir starfsmenn fái svipuð laun. Hvað segir hann þá um þá þúsundir íslendinga sem eru í Háskóla að sækja sér menntun og símenntun og viðbótar menntun til að hafa það bara nógu djöfulli gott. Senda þetta fólk úr landi? Framtíðarsýn Ögmundar er Ísland er fyrir fólk þar sem engin má skara framúr.

Kjósum rétt í vor, allt nema VG


Að lokum vill ég þakka þeim fjölmörgu sem hafa komið að máli við mig í aðdraganda kosninga, en ég hef tekið þá ákvörðun að bjóða mig ekki fram.
|