Er maettur a spán svaf ansi lítid i nótt vegna hita en ég er samt búin ad venjast thessu núna. Hitinn thokkalegur og ferd í eitthvad tívólí í kvold. Fékk bílaleigubílinn ádan og er strax byrjadur ad keyra eins og hinir villimennirnir oskrandi útum gluggan og er ekkert ad spara flautuna sem er vel.
föstudagur, ágúst 22, 2003
miðvikudagur, ágúst 20, 2003
Haldiði að kallinn hafi ekki bara ákveðið að skella sér til Alicante í fyrramálið en það er gaman. Kannski fáið þið að heyra frá mér í sólinni en ég efa það.
laugardagur, ágúst 16, 2003
Menningarnótt í dag og þessvegna ætla ég að læra í gömlum jakkafötum af afa og ekki fara í sturtu, bara svona til að hafa þetta soldið listamannalegt. Já síðan er næstum öllum boðið að horfa á mig læra í dag því það er svona gjörningur í tilefni dagsins. Muna bara að hafa hljótt og koma með nammi eða eitthvað gott fyrir listamanninn.
föstudagur, ágúst 08, 2003
Enn ein vonbrigðin í gær með blikana, vorum tvö eitt yfir en Haukar náðu að jafna á 96 mínútur. Fúlt
þriðjudagur, ágúst 05, 2003
Smábloggarinn Gummi er komin af stað aftur eftir sumarfrí og nú geta gestir síðunnar átt von á smábloggi næstu daga. Kópur 2003 var haldinn um helgina og það er samdóma álit manna að þetta var einhver besta útihátíðin í ár. Hátíðin byrjaði að vanda á föstudag við kópavogshöfn þar sem dorgveiðikeppnin var haldin. Ívar "Aflakló" Gestsson var að vanda með flesta fiskanna en ég veiddi þann stærsta og mér til mikilla vonbrigða voru ekki veitt verðlaun fyrir það í ár. Survævor leikurinn var á nýjum stað þessa helgina en ákveðið var að vera í Heiðmörk ár, það var brillant enda vann ég Survævor. Grill á sunnudag í V15, brekkusöngur á tennisvelli við Digranes og síðan heim að sofa. Flott helgi. (Má ekki skrifa meir því þetta er víst smábloggsíða)
