Nú hef ég ákveðið að hætta vera veikur, allir eða allt það sem hefur valdið höfuðverk, hita, hálsbólgu og hori síðustu daga eru vinsamlegast beðnir um að hætta og yfirgefa svæðið. Takk fyrir
laugardagur, mars 06, 2004
miðvikudagur, mars 03, 2004
Það er mikið til að bloggsíðum en það verður alltaf bara ein síða sem er best hverju sinni og það er alveg örugglega þessi. Síðan er reglulega uppfærð, hún er með skemmtilegum glæpasögum, tilvitnanagetraun flesta morgna, listrænar myndir af höfundi síðunnar á náttfötum og síðast en ekki síst nokkrir góðir vídeófælar.(úff! löng setning) Burri.blogspot.com fær 4 fjaðrir af 4 mögulegum.
mánudagur, mars 01, 2004
Þrumugóð helgi, byrjaði á 25 ára afmæli á föstudag hjá tölvugúrúinu góðkunna Gísla Herjólfs. Þar var nóg af veitingum og því miður komst ég ekki til vinnu á laugardag eins og ég var pínu búinn að lofa. En þegar maður skemmtir sér eins og vindurinn þá þarf maður bara að hvíla sig daginn eftir. Enda var nóg að gera daginn eftir, Örvar var að útskrifast úr umhverfis- og byggingarverkfræðinni og hélt auðvitað gott gill fyrir mannskapinn. En aðalfréttin er auðvitað sú að Örvar er að verða pabbi í september og óska ég honum og Önnu enn og aftur til hamingju með það.
