þriðjudagur, ágúst 29, 2006

Ég ætlaði að blogga eitthvað um útför mína til Boston í dag en ég var að lesa á e-miðanum mínum að ég á víst að fara í loftið kl 17:00 en ekki kl 18:30 eins og ég hélt. Ég er því farinn að pakka.

Verð í Portsmouth, NH í 2-3 daga svo Boston.
|

föstudagur, ágúst 25, 2006

Orkumót - You, Me and Dupree

Var að spila golf í gær á Orkumóti OR á Grafarholtsvelli. Spilað var eftir texas scramble fyrirkomulagi og var félagi minn alveg svakalega góður, vorum aðeins 4 höggum frá fyrsta sæti og það var ekki mér að þakka. Ég var hörmulegur, átti ekkert dræv sem hægt var að nota og bara nokkur inná högg. En gaman að spila á flottasta velli landsins, veglegar veitingar og frábært veður.

Svo var mér boðið á 2 myndir í gær, Ívar bauð mér á Thank you for smoking, svo hringdi Eyþór í mig vegna FM957 sýningar á You, Me and Dupree.

Þessi mynd fer alveg í flokk með bestu grínmyndum ársins, venjuleg buddy mynd með kunnuglegu handriti. Þarf ekkert að segja frá myndinni þetta er alltaf sama handritið, en þessi er dýrari týpan og og ein af þeim sem er bíóferðar virði. 3 1/2 stjarna.
|

fimmtudagur, ágúst 24, 2006

Svakalegt

Hvað gat Mendes hafa gert Thatcher til að eiga skilið svona högg?

|

Bylgjan á afmæli!!!

Snilld snilld snilld, Bylgjan á afmæli á laugardaginn og þvílík dagskrá hefur ekki heyrst í úvarpi síðan 28 ágúst 1986. Hinir ógleymanlegu "tveir með öllu" hefja veisluna og ef menn hafa heyrt í þeim Gulla Helga og Jóni Axel Ólafssyni þá vita menn að þetta eru fyndnustu menn í heimi.
Valdís Gunnarsdóttir er næst og ég er grautfúll að 28 ágúst er ekki Valentínustardagurinn því hún ein getur fyllt þennan dag af þeim hátíðleik og ástarfíling sem hann á skilið. Hún er með svo þægilega rödd og ef maður vill hafa það kósý heima hjá sér þá er best að hafa stillt á Valdísi. Prakkararnir Valtýr Björn og Siggi Hlö reka svo endahnútinn á þessa stórkostlegu veislu. Ég get ekki beðið.
|

miðvikudagur, ágúst 23, 2006

The Matador

Loksins góð buddy mynd, er búin að bíða lengi eftir góðri mynd af þessari gerð. The Matador fylgir þessu týpíska handriti og gerir það vel.
Hlutverkin eru hefðbundin, Pierce Brosnan leikur djarfa fíflið og svo er Greg Kinnear í hlutverki huglausa fjölskyldumannsins. Fullkomið leikaraval og þeir standa sig vel í kunnuglegum hlutverkum.
Sagan er einföld, Brosnan er taugaveiklaður launmorðingi sem komin er á breytingarskeiðið og fattar að hann á ekkert líf fyrir utan vinnuna. Hittir Kinnear í Mexico og þeir verða svo miklir vinir að hann segir honum frá því hvað hann gerir. Kinnear er víðsýnn og nútímalegur í hugsun og finnst þetta allt í fína, svo lendir Brosnan í vandræðum og hver haldið þið að bjargi honum? Já auðvitað Kinnear, sem sýnir sko að hann sé ekki huglaus og þeir enda sem bestu vinir. The End

Myndin gerist á fullt af stöðum um evrópu og úr verður James Bond fílingur í léttum dúr með Buddy handriti. Flott afþreying, 2 1/2 stjarna

[GETRAUN: sá sem er fyrstur til að skrifa inn í comment 5 buddy myndir fær verðlaun, ekki af verri endanum, þ.e dýrari týpan. Bannað að skrifa framhaldsmyndir]
|

þriðjudagur, ágúst 22, 2006

Restart

Jú byrjaður að blogga aftur, þó ég hafi varla verið byrjaður áður, en við skulum sjá hvað ég nenni þessu.

Er reyndar byrjaður í fríi og veit ekki alveg hvað ég á að gera[hóst, ritgerð]. Búin að horfa á nýjasta Rockstar þáttinn og netinu, þetta fína innlegg frá Lencie í x-factor þáttinn en næsta mál er að grynnka eitthvað á þessum myndum sem ég á eftir að horfa á í safninu. Er með The Matador í tækinu byrjar nokkuð vel og ég skal kannski dæma hana í fyrramálið.

Liverpool er að spila í kvöld og ég verð að segja ykkur frá því að ég er skyggn og Liverpool tapar. Fékk ekki úrslitin nákvæmlega að handan en þeir tapa. Algjör skandall og þeir vinna ekki leik fyrr en um miðjan september. Þar hafið þið það beint frá sjáandanum mikla.
|