Ég biðst afsökunar á því að ég hef ekki bloggað í nokkra daga, en það er algjörlega á ábyrgð vina minna á tölvudeild bæjarins. En þeir virðast ekki kunna á allar þessar græjur sínar. MSN virkar ekki lengur og netið er búið að vera mjög óstöðugt síðustu vikur, ég held að það þurfi bara að fara að kaupa þessa tölvuþjónustu af einkageiranum. Tölvudeild bæjarins virðist bara ekki ráða við þetta.
En hvað er með þessa kennara, það er búið að borga þeim fyrir nóvembermánuð og lofa þeim 130 þús. kr eingreiðslu en samt brjóta þeir lög og mæta ekki til vinnu í dag. Ég hef nú aðeins verið að fylgjast með þessu og ég hef komist að því að kennarar vilja ekkert bara hærri laun. Þeir vilja aðalega að allir fái jafnhá laun og engin yfirmaður segi þeim fyrir verkum. Þetta er auðvitað einföldun á málinu en ef við skoðum á síðunni kennarar.is þar sem upptalin eru helstu kröfugerðir kennara.
1. Hækkun grunnlauna
- Að meðaltali hækka laun í upphafi með breyttri launatöflu um 13,5%.
- Þeir sem yngri eru hækka hlutfallslega mest eða um allt að 30% við upphaf samnings
- Pottflokkar skólastjóra verði færðir inn í grunnlaun.
Pottflokkar voru settir að 2/3 inn í grunnlaun og launahækkun kennara reiknaðist 30% hjá sveitarf. En það eru margir kennarar sem halda það að vinna minna fyrir sama pening sé ekki launahækkun. Sem er auðvitað bull
2. Vinnutími
- Almenn kennsluskylda lækkar úr 28 kest. í 26 kest
Samþykkt
- Verkstjórnarþætti skólastjóra (9,14) verði breytt þannig að meiri tími verði á forræði kennaranna sjálfra.
Skólastjórar mega bara töflusetja 5,14 klst af verkstjórnartímanum þannig að þarna unnu kennarar enn einn sigurinn.
3. Endurmenntun
Þekki þetta ekki
4. Framlag í sjóði
Mótframlag sveitarfélaganna í sér-eignalífeyrissjóð verði 2%
Samþykkt
Kennarar virðast hafa unnið stórsigur í þessari kjarabaráttu samkv. kröfugerðinni sem þeir voru með fyrir verkfall. En það voru liðnar 3 vikar af verkfalli þegar launanefndirnar voru bara búnar að semja um vinnuskilgreiningar, vinnutíma og launapotta. (Þar sem kennarar fengu öllu sínu framgengt) Þá loksins var hægt að byrja að tala um launahækkanir.