fimmtudagur, ágúst 24, 2006

Bylgjan á afmæli!!!

Snilld snilld snilld, Bylgjan á afmæli á laugardaginn og þvílík dagskrá hefur ekki heyrst í úvarpi síðan 28 ágúst 1986. Hinir ógleymanlegu "tveir með öllu" hefja veisluna og ef menn hafa heyrt í þeim Gulla Helga og Jóni Axel Ólafssyni þá vita menn að þetta eru fyndnustu menn í heimi.
Valdís Gunnarsdóttir er næst og ég er grautfúll að 28 ágúst er ekki Valentínustardagurinn því hún ein getur fyllt þennan dag af þeim hátíðleik og ástarfíling sem hann á skilið. Hún er með svo þægilega rödd og ef maður vill hafa það kósý heima hjá sér þá er best að hafa stillt á Valdísi. Prakkararnir Valtýr Björn og Siggi Hlö reka svo endahnútinn á þessa stórkostlegu veislu. Ég get ekki beðið.
|