Samgöngumiðstöð Kópavogs brunninn
Þvílikt áfall fyrir bæinn, kviknaði í samgöngumiðstöðin okkar og þetta stórkostlega mannvirki rifið í kjölfarið. Það verður ekki auðvelt fyrir nýtt hús að njóta sömu hylli og gamla skiptistöðin.
En það er ekki öll von úti, því undirgöngin sem teygja sig undir miðbæinn okkar er ennþá til staðar og það er vonandi að meirihlutinn átti sig á þeim möguleika grafa meira og lengra. Gera þetta að almennilegri samgönguæð fyrir Kópavogsbúa í anda London Underground og Paris Metro. Það á bara að hugsa stórt og vinna þetta almennilega, þannig hugsuðu þeir sem byggðu Hamraborgina og hún er sko sannkallað stórborgarmeistarverk með háhýsum og skemmtilegri borgarstemmningu á öllum tíma sólarhrings. Nú er það bara að ná tali af Gunnari Birgis og kynna honum þessa frábæru hugmynd, það er stutt í kosningar og menn hljóta að vera byrjaðir að hugsa um næstu kosningaloforð og hvernig eigi að halda völdum.

<< Home