föstudagur, júní 11, 2004

Breiðablik 0 - Njarðvík 2
Var að koma heim af leiknum og ég held að þessi meistarflokkur sé bara samansafn af lúserum. Það er alltaf svaka fín stemmning fyrir leiki og menn í baráttuhug,í neðrideild deildarbikarsins í vetur fóru allir leikirnir tíu núll eða meir. En strax og þegar menn þurfa að hafa fyrir leiknum og menn þurfa að gefa af sér og spila fyrir liðið þá fáum við svona úrslit. Ég sem var að vonast til að Sverrir Sv myndi geta breytt eitthvað hugsunarhættinum, en það er kannski of seint í rassinn gripið að reyna að búa til sigurvegara úr þessum drengjum núna. Ég er brjálaður. Alveg kreisí
|