Forsetakosningar og fífl.
Hvað er þetta með hann Ástþór, í mogganum í morgun segir hann að trúi ekki að íslendingar geti verið svo harðbrjósta að þeir skili auðu á morgun en gefi ekki friðarhöfðingjanum sitt atkvæði. Þvílíkur hálfviti, maðurinn er búinn að haga sér eins og fífl síðustu ár með alskonar hálfvitagang og núna eigum við að treysta honum fyrir okkar mesta virðingarembætti. Hann segist ekki ætla að haga sér eins og fífl sem forseti því hann hagar sér bara eins og fífl þegar hann er í forsvari fyrir lítil grasrótarsamtök sem þurfa athygli. Hvernig eigum við að geta treyst því að þessi maður fari ekki að klína á sig tómatsósu þegar hann ætlar að reyna að boða frið sem forseti 280 þús. manna þjóðar í hinum stóra heimi. Bull og vitleysa og muna að skila auðu því forseti vor er athyglissjúkur bjáni, Ástþór er geðveikt fífl og ég nenni ekki að eyða orðum í hann Bárð eða hvað sem hann heitir.

<< Home