þriðjudagur, júní 22, 2004

Mér er að verða óglatt yfir því hvað bretarnir eru að æla yfir Wayne Rooney af hrifningu. Núna eru þeir að kalla hann hinn nýja Pele, djíses kræst. Á síðasta tímabili spilaði hann 34 leiki og skoraði 9 mörk og í mínum bókum eru menn ekki orðnir góðir fyrr en þeir skora 20 mörk á tímabili. Wayne Rooney er búinn að skora 3 mörk á EM en mín spá er að hann eigi eftir að enda eins og Salvatore "Toto" Scillachi sem hvarf eftir að hafa meikað það á HM 90.
|