sunnudagur, ágúst 01, 2004

Kópur 2004 - Föstudagskvöld

Kópur 2004 er með minnsta móti þetta árið og það var fámennt en góðmennt í dorgkeppninni á föstudagskvöldið. "Sigurvegarinn" þetta árið var Örvar Steingrímsson en hann keppti í flokki fatlaðra og meistaraflokki. Það að Örvar skuli hafa fengið að vinna keppnina lýsir best stemmningunni sem var í dorg keppninni. Menn voru komnir til að skemmta sér og þegar menn sáu hvað Örvar var glaður með Það að hafa veitt fisk þá var ákveðið að hann skildi vinna keppnina. Kópur er ekki bara hörð keppni í hinum ýmsu leikjum og íþróttum, það er líka hugsað um minni máttar og klaufa og þeir fá sín verðlaun líka. Til hamingju Örvar!

Hægt er að skoða myndir frá helginni hér.
|