miðvikudagur, júlí 28, 2004

Breiðablik-Þróttur


Frændi minn hann Steinar Hákonarson á afmæli í dag, 3. ára og auðvitað eru frændur hans búnir að kaupa fyrir hann fyrsta Liverpool búninginn.

Fór á leik Breiðabliks og Þróttar í gærkveldi og ég held að þetta hafi bara verið með leiðinlegri leikjum sem ég hef séð á Kópavogsvelli. Fyrstu tuttugu mínúturnar voru með leiðinlegasta móti en þá lét Pétur fh-ingur reka sig útaf og það gerðist eitthvað sem ég hélt að gæti ekki gerst, leikurinn varð leiðinlegri. Ég nenni ekki að segja frá þessum leik en ég vill þakka Örvari og Stebba og öðrum sem ég hitti fyrir að vera með mér á leiknum og halda mér vakandi.

Annars hitti ég Ómar Stefáns í gær og ég spurði hann hvort framsóknarmenn í hafnarstjórn ætluðu ekki að gera eitthvað í þessum viðbjóði sem viðgengst við höfnina í Kópavogi. En eins og dyggir lesendur síðunar vita þá var ég að skrifa í síðustu viku um hve mikið af rusli og óþverra væri þarna útá nesi. Auðvitað vissi framsóknarmaðurinn af þessu og hann er kominn í málið, og þá megum við eiga von á breytingum á næstu vikum... eða mánuðum. Ómar bauðst líka til þess að losa höfnina fyrir okkur svo við getum dorgað á föstudagskvöldið. Enda er hann fastagestur og fulltrúi hafnarstjórnar í dorginu á Kóp. Muna svo bara að kjósa rétt í næstu kosningum hérna í bænum !
|