föstudagur, júlí 16, 2004

Kosningar og Hárið

Ég var að lesa grein eftir Ólaf Teit Guðnason í viðskiptablaðinu í gær og þar segir hann frá grein sem Gunnar Smári Egilsson ritstjóri fréttablaðsins skrifaði fyrir forsetakosningarnar.  Í þeirri grein stillir hann upp nákvæmum mælistikum á það hvað hvaða úrslit væru góð fyrir Ólaf og hvað væru markmið þeirra sem hvöttu menn til að skila auðu. En Gunnar Smári segir í grein sinni að  
Markmið þeirra hlýtur að vera að berja stuðninginn við Ólaf undir 50 prósent af öllum atkvæðabærum mönnum"
síðan segir hann 
"Ef Ólafi Ragnari tekst að verjast þessu getur hann túlkað það sem varnarsigur. Ef hann nær atkvæðum fleiri en 55 til 58 prósenta atkvæðabærra manna – í kringum 80 prósentum atkvæða í kosningum með 70 prósenta kjörsókn – getur hann túlkað niðurstöðuna sem mikinn sigur."
Staðreyndin var sú að Ólafur fékk  atkvæði 42.5% atkvæðabærra manna.  Ekki leið sá dagur í vikunni eftir kosningar að það birtust fréttapistlar og greinar í Fréttabl og DV, þar sem reynt var með góðum árangri að heilaþvo almenning um það að Ólafur Ragnar hafi fengið frábæra kosningu.  En við vitum betur.

Annars fór ég á Hárið í gær með vinnunni og  sýningin var bara assgoti góð.  En ég vona að þetta Austurbæjabíó verði rifið sem fyrst svo maður þurfi ekki að horfa á svona fína sýningar í svona hjalli aftur.  Alveg óþolandi að maður hafi ekki útsýni yfir allt sviðið og þurfi alltaf að snúa sér í sætinu til að sjá framhjá hausnum á þeim sem situr fyrir framan mann.  Hárið 3 stjörnur.
|