þriðjudagur, júlí 13, 2004

Jæja svo

Það er greinilegt að Jose Mourinho þjálfari Chelsea er mikill húmoristi, í nýlegu viðtali segir hann að John Hartsson sé einn besti framherjinn í faginu. Já hann kaupir örugglega tréhest sem þurfti að fara í skosku deildina til að skora mörk.
Annars var ég að lesa frétt þar sem það á að fjarlægja alla ljósabekki úr sundstöðum borgarinn afþví að einhver húðsjúkdómalæknir sagði það sem allir vita, að ljósabekkir eru óhollir. Djöful fer svona forræðishyggja í taugarnar á mér svona andskoti kemur bara úr hugarheim vinstri grænna og svoleiðis pakks sem ekkert vill leyfa nema með leyfi einhverrar ríkisstofnunar.
Annars verðið þið að kíkja á heimasíðu Kópsins en ég er búinn að leggja dag og nótt við þetta verkefni.
|