miðvikudagur, júlí 07, 2004

THÍ+HR+Bifröst=Rusl

Var að lesa ansi áhugaverða grein í mogganum í gær, en þar skrifar Friðrik Eysteinsson lektor við Tækniháskóla Íslands um hve skólinn sem hann kennir við gerir litlar kröfur til nemenda sinna. Forsagan af þessu máli er sú að í vetur féll meirihluti nemenda á síðasta ári í rekstrardeild í 2,5 fögum af 5 að meðaltali. Rektor skólans setti saman nefnd sem átti að fara ofan í málin og skella skuldinni á lélega kennara. En hann segir að ástæðan fyrir slæmu gengi nemenda vera.
""Í fyrsta lagi voru allir og amma hans teknir inn í skólann. Í þeim löndum þar sem háskólar þykja hvað bestir er hluti gæðastýringarinnar fólginn í því að velja inn bestu nemendurna. Í öðru lagi er nánast engin sía fyrstu tvö árin í náminu í skólanum. Mörg prófanna eru svokölluð ""glærupróf"" sem þýðir að einungis er spurt út úr þeim glærum sem kennarar hafa notað og jafnvel gefið upp úr hverjum þeirra verður spurt. Í hópverkefnum, sem í mörgum tilfellum giltu 50-70% af lokaeinkunn, voru oftast 6-9 nemendur eða fleiri saman um að vinna verkefni(jafnvel að leysa stærðfræðidæmi) og fengu eina einkunn fyrir. Lítið var kannað framlag hvers og eins nemenda hefði verið, ef eitthvað. Þegar ofangreint er haft í huga ætti ekki að koma á óvart að nemendur stráféllu þeguar þeir komu upp á þriðja árið þar sem fyrirkomulag hópverkefna og próf eru með viðurkenndari hætti.""
Ennfremur sagði hann
""Og í tilfelli nemendanna, sem áður var minnst á og féllu á lokaárinu, átti að reyna að keyra í gegn að prófin yrðu bara ógilt en nemendur tækju endurtekningarpróf ( ekki skrifleg heldur ‚‚svona spjall??). Ekkert mátti trufla nemendur á leið þeirra út á vinnumarkaðinn!""
Þarna er kominn staðfesting á því sem margir HÍ menn hafa verið að tala um síðustu ár. Það fellur engin í þessum einkareknu skólum því þeim er ekki leyft að falla. Það er ekki frábærri vinnuaðstöðu í skólanum að þakka eða að þessir krakkar leggi eitthvað meir á sig því það kostar meir í skólann. Það má bara enginn falla því það kostar skólana pening ef aðsókn í þá minnkar. Friðrik endar greinina líka á því að THÍ ætti bara að bara að auglýsa ""Prófgráður frá skóla sem ekki er viðurkenndur. Engin próf. Engin tímasókn. Engar bækur.""
"Háskóli atvinnulífsins?" Morgunblaðið, 6 júlí 2004, bls 26.
|