Sundlaugar
Fór í bústað um helgina og nálægt bústaðnum er sundlaugin Hlaðir, snyrtileg sundlaug og boðið er uppá kaffi við laugarbakkann sem var ansi fínt. En ég var að hugsa afhverju sundlaug kópavogs þarf alltaf að vera svona drulluskítug, sóðaleg og maður þarf að vera virkilega heppinn ef starfsfólkið nennir að afgreiða mann. Ég er reyndar með árskort í laugina og þarf því ekki að hafa samskipti við starfsfólkið nema þegar ég þarf að geyma verðmæti í afgreiðslu, en það tekur á taugarnar að þurfa að fá afgreiðslu í bestu sundlaug landsins. Gerum betur.

<< Home