þriðjudagur, júlí 20, 2004

Kópavogshöfn


Við í miðstjórn undirbúningsnefndar fyrir Kóp 2004 fórum í gær í rúnt um Kópavogsbæ til að skoða aðstæður fyrir þjóðhátíðina.  Það kom í ljós í gær að Atlantsskip hafa lokað höfninni þar sem dorgið hefur verið síðustu ár og við þurfum að færa okkur yfir á litlu smábátahöfnina.  En þegar við vorum að skoða aðstæður þá brá mér eiginlega hve mikill sóðaskapur er þarna á hafnarsvæðinu.  Allt í rusli við höfnina og á einkalóðum á svæðinu, ekki búið að klára að malbika göngustíga og þvílík olíubrák í höfninni.  Ég vona að þeir framsóknarmenn sem hafa verið gestir á Kóp síðustu ár bregðist við þessu og fá bæinn til að þrífa svæðið fyrir verslunarmannahelgina. Gerum betur.

|