fimmtudagur, júlí 22, 2004

Heimsmeistarmót Kópavogsbæjar í golfi

Í gær spilaði ég á óopinberu heimsmeistaramóti Kópavogsbæjar í golfi og var í 2 sæti í mínu holli sem var samt engin árangur þarsem spilamennskan í hópnum var mjög döpur. Ég held ég hafi týnt svona 5 boltum og tók allavega 10 víti. Samfylkingarmaðurinn og komminn hann Bjergvehn rústaði þessu með 30 eða 40 punktum bara á seinni 9 holunum sem er bara kreisí spilamennska. Í fyrradag bauð Reynir okkur félögunum að spila með sér á Oddfellow vellinum og þar var spilamennskan líka til skammar. Stebbi var þar með nokkura högga forystu fyrir síðustu holu en hitti ekki braut í fyrsta höggi. Skynsamur spilari hefði tekið víti í þessari stöðu og tekið þriðja högg á braut en Stebbi er greinilega ekki skynsamur. Hann barði kúluna fyrir utan braut svona 5 sinnum áður en hann komst inná braut og tapaði höggleiknum fyrir Reyni með einu höggi,gífurleg spenna.
En veður gott, ágætis félagsskapur og kostnaður í lágmarki.
|