föstudagur, ágúst 13, 2004

Allt og ekkert að gerast

"I tillegg har jeg tatt av fire kilo. Jeg har lagt om kostholdet"Núna er allt og ekkert að gerast hjá Liverpool, netmiðlarnir eru allir búnir að koma með svo mismunandi sögur um það hver sé að koma í skiptum fyrir Owen að ég er hættur að spá í þessu. Vítabaninn Owen fer og vonandi kemur Xabi Alonso og einhver á hægri kantinn, ég hef aldrei séð þennan Alfonso spila enn hann er örugglega betri en Murphy og það er bara löngu kominn tími til að sjá ný andlit í þetta Liverpool lið.
Annars er ég, Reynir, Sævar og Stebbi með teig á Korpúlfsstaðavelli kl 18:30 í kvöld sem er snilld.

Gísli er búinn að gera heimasíðu þar sem höggið hans er skrásett í myndum.

|