þriðjudagur, september 28, 2004

París


Iss piss, það er auðvitað löngu kominn tími á blogg hérna en ég hef bara ekki nennt því fyrr en núna. Er ekki best þá bara að telja upp það sem á daga mína hefur drifið.
Gummi Árna og Hildur skírðu drenginn á sunnudaginn og fékk hann nafnið Brynjar Örn Guðmundsson, svaka veisla í höllinni á Seltjarnarnesi, glæsilegar kökur og fínerí. Ég verð nú bara að segja það að ég er feginn að drengurinn fékk ekki nafnið Engill, Zedan. Fjín eða eitthvað eitthvað svona nýmóðins nafn. Brynjar Örn er gamalt og gott íslenskt nafn. Til hamingju.

Ingvarsson flutti til Rotterdam í morgun og verður geymdur þar næsta árið.

Meinhornið er dautt.

Ég er á leið í helgarferð til Parísar á morgun með vinnunni og ætli ég bloggi ekki einhverja ferðasögu á mánudag um listina og lífið í París
|