Helgin: landsleikur og golfmót
Fórum 15 saman á leikinn á laugardag og þegar maður borgar þrjúþúsundogfimmhundruðkall fyrir svona viðbjóð þá er maður fúll. Enda er ég næstum búinn að ákveða að fara ekkert á landsleik í bráð, allavega ekki meðan verðið er í kringum þrjúþúsundkallinn. Jón Hannes var að fara á sinn fyrsta landsleik og ég hvet KSÍ að endurgreiða honum miðann því menn eiga ekki að byrja sinn fótboltabulluferil á svona leiðindum.
Fjölskyldu golfmótið árlega fór fram í gær í ágætis veðri á þórisstaðavelli en rétt fyrir og eftir mót rigndi alveg geðveikislega þannig að aðstæður á vellinum voru blautar. Ég er búinn að vinna þetta síðustu 2 ár, þannig að það var kominn tími að leyfa öðrum að taka titilinn í ár og það var Hákon sem vann þetta á 45 höggum.
Keppni um spurningar er í fullum gangi þarsem enginn hefur geta giskað á hvaða lag er verið að spyrja um hér fyrir neðan.
Annars hvet ég menn til að kíkja á meinhornið, þar er alltaf verið að blogga.

<< Home