miðvikudagur, mars 12, 2003

Já núna eru aðeins 2 sólarhringar í norðurferð og spennan að verða ofboðsleg. Hinni er í þessum skrifuðu orðum að flytja í stærra húsnæði til að geta tekið á móti okkur og Stuðmenn hafa ákveðið að henda upp giggi á Sjallanum á laugardag okkur til heiðurs. Því miður komast ekki allir meðlimir klúbbsins með í þessa ferð þó svo að hún hafi verið ákveðin fyrir meir en einum og hálfum mánuði. Það kunna bara sumir að skipuleggja námið og aðrir ekki. En mér finnst þetta vera bara spurning um forgangsröðun og það er augljóst að sumir eru ekki með sína á hreinu. En mér finnst Öbbi frændi hafa lýst þessu nokkuð vel í ímeili í dag "Leitt fyrir þá og okkur alla! En aðalega þá!"

|