já það er alltaf eitthvað nýtt og hressandi í blogginu hjá mér en ég er að spá að vera með bókagagnrýni á þær bækur sem ég er að lesa og þær bækur sem ég nenni ekki að lesa.
Fyrsta bókin sem ég ætla að skrifa um heitir Í upphafi var morðið eftir Árna Þórarinsson og Pál Kristinn Pálsson en ég var einmitt að klára hana í gærkveldi. Bókin er um Kristrúnu sem er ungur kvikmyndaleikstjóri sem er að vinna að heimildarmynd um ár í ævi jökuls þegar móðir hennar deyr með voveiflegum hætti (já voveiflegum). Samband þeirra mæðgna hafði eins og fleira í fortíð Kristrúnar, verið erfitt og átakamikið. Áður en Kristrún veit af er hún sjálf komin í kaf í rannsókn á dularfullri atburðarás sem kollvarpar því sem hún hafði áður talið sannleikann um ævi sína.
Í stuttu máli er þetta bara svona venjuleg krimmasaga sem heldur manni svona þokkalega við efnið í byrjun, en þegar líður á söguna er þetta snjöll og margslunginn flétta sem heldur manni asskoti spenntum til loka. Ég er að spá að gefa henni 3 fjaðrir af 5.

<< Home