fimmtudagur, febrúar 06, 2003

Þá er það víst komið að mér að halda út bloggsíðu í nokkra daga og nenna þessu svo ekki lengur. Enn þeir eru nokkrir sem hafa prófað og ekki nennt þessu. Jón. Örvar frændi, Sævar Jökull Solheim, Hjörvar, Villi .
Ég er annars hundfúll út í þetta ömurlega lið sem ég held með en þessi leikur í gær á móti Crystal Palace var svo mikil niðulæging að Houllier hlýtur að fara að hugsa um að hætta þessu og snúa sér að einhverju öðru (úff! löng setning). En ég er að spá að tala ekkert meir um þetta leiðinlega lið í bráð því ég verð svo andskoti pirraður þegar ég fer að hugsa um þetta.
Jón var að senda mér þessa mynd sem hann vill kalla "Himnaríki" , andlit Búnaðarbankans er ekki andlít Búnaðarbankans út á ekki neitt.
Smá fróðleikur í lokinn.

Gummi Sv.
|